Tímabilið 1. september til 1. maí
Börn 12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 20:00
13-16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22:00
Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur.
SAMAN hópurinn (samanhopurinn.is) hvetur foreldra til að kynna sér þær reglur sem gilda um útivistartíma barna og unglinga.