Kerhólsskóli vinnur í anda einstaklingsmiðaðra kennsluhátta, umhverfismenntar auk þess sem áhersla er lögð á list- og verkgreinar.
Samkennsla og samvinna árganga er ríkjandi og áhersla er lögð á teymisvinnu kennara.
Haustið 2014 fluttu leikskóladeild og grunnskóladeild Kerhólsskóla undir sama þakið í nýja skólabyggingu sem byggð var við hlið eldri skólans og að hluta samtengd honum, m.a. var bókasafn skólans áfram í eldri hlutanum.
Eldri grunnskólanemendur í Grímsnes- og Grafningshreppi sóttu Bláskógaskóla í Reykholti í Biskupstungum frá árunum 2005 til 2015, vorið 2015 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepp að Kerhólsskóli yrði heildstæður skóli upp í 10. bekk og að breytingin ætti sér stað strax um haustið 2015. Árgangur barna fædd árið 2001 fór því ekki í Bláskógaskóla heldur varð fyrsti 9. bekkur Kerhólsskóla og síðar fyrsti 10. bekkur.