Markmið heilsuverndar grunnskólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan.
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Hjúkrunarfræðingar heilsugæslunnar sjá um heilsuvernd skólabarna.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, fræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Embættis landlæknis og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna.
Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á
heilsuvera.is